
Eva Dóra Kolbrúnardóttir
Héraðsdómslögmaður · Eigandi
Eigandi stofunnar er Eva Dóra Kolbrúnardóttir hdl., en hún útskrifaðist sem lögfræðingur með áherslu á viðskipta- og skattarétt frá Háskóla Íslands með fyrstu einkunn í september 2011 og síðar með meistarapróf í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands í september 2013.
Eva hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum árið 2014. Í kjölfarið stofnaði hún lögmannsstofuna EVA Lögmenn ehf.
EVA Lögmenn veitir viðskiptavinum sínum persónulega þjónustu þar sem fagmennska, heiðarleiki og trúnaður er hafður að leiðarljósi. Áhersla er lögð á að allir einstaklingar eigi að geta átt kost á því að ráðfæra sig við lögmann um sín mál óháð fjárhag.
Leggur stofan sig því fram við að takmarka bæði kostnað og áhættu viðskiptavina sinna með því að sækja um gjafsókn og/eða málskostnaðartryggingu — en málskostnaðartrygging er nær undantekningarlaust inni í heimilistryggingum viðskiptavina.
Bóka viðtal →„Áhersla er lögð á að allir einstaklingar eigi að geta átt kost á því að ráðfæra sig við lögmann um sín mál óháð fjárhag."
